Það er frekar glötuð byrjun á nýjum bloggferli að fjalla um efnahagsástandið. En þrátt fyrir að hafa lent í ýmsu í dag, þ.á.m. flutt heimshorna á milli, lagt mig í rúmi skandinavískrar sjónvarpsstjörnu og hitt hund í líking kattar (ég skal fjalla um þetta seinna), þá einfaldlega þótti mér þetta standa upp úr:
Verandi eigna- og skuldlaus stúdent hef ég kannski ekki orðið jafn illa fyrir barðinu á kreppunni og margir aðrir. Hin ofureinfalda tilvera mín líður áfram sinn fyrirsjáanlega veg algjörlega ósnert. Ætli það sé ekki þess vegna að ég fann mig aldrei knúinn til að æsa mig eða taka þátt í mótmælum. Jafn sjálfhverfur og ég er, hafði ég bara enga ástæðu til þess.
En þetta litla blogg mitt (og þá bara þessi færsla, þetta er ekki moggablogg), er semsagt minn dropi í þann hafsjó kveina sem hrærast í deiglunni. Því guð minn almáttugur hvað gengið er okkur óhagstætt!
Appelsín og karamellur = 820 ISK.
Ein ferð með strætó = 500 ISK.
Sokkar í H&M = 2800 ISK.
McDonalds máltíð (ekki stækkuð) = 1800 ISK.
kv. Dr. Gunni
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comments:
o que é isso nao entendi nada!!!!!!!!!!
Sendu inn athugasemd